Knattspyrnumaðurinn Ethan Mbappé er genginn til liðs við franska félagið Lille frá París SG.
Ethan er yngri bróðir stórstjörnunnar Kylian Mbappé sem fór frá París SG til Real Madrid fyrr í sumar.
Ethan kemur til Lille á frjálsri sölu en hann er aðeins 17 ára gamall. Ungi leikmaðurinn á að baki fjóra leiki fyrir aðallið París SG og skrifar undir þriggja ára samning við Lille.
Hjá Lille verður Mbappé liðsfélagi landsliðsmannsins Hákonar Arnars Haraldssonar.