Fimmtán sigrar í röð hjá Guðrúnu og félögum

Guðrún Arnardóttir spilaði allan leikinn í dag.
Guðrún Arnardóttir spilaði allan leikinn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Rosengård sem vann fimmtánda leikinn í röð í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Rosengård hafði betur gegn Vittejö, 3:0 í dag og liðið er á toppi deildarinnar með 45 stig og ótrúlega markatölu en liðið hefur skorað 69 mörk og aðeins fengið fjögur á sig hingað til.

 Norrköping vann Íslendingaliðið Kristianstad, 2:0 í sömu deild í dag en Hlín Eiriksdóttir, Guðný Árnadóttir og Katla Tryggvadóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad. Liðið er í fjórða sæti með 26 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert