Undarlegt atvik átti sér í vítaspyrnukeppni Argentínu og Ekvadors í átta liða úrslitum Ameríkubikars karla í knattspyrnu í Houston í nótt.
Argentína vann vítaspyrnukeppnina, 4:2, eftir að leikar enduðu 1:1.
Lionel Messi steig fyrst á punktinn en klúðraði vítaspyrnu sinni með því að vippa boltanum í slána. Eftir það kom markvörður Ekvadors Alexander Dominguez upp að honum og kyssti hann og faðmaði.
Argentína mætir Venesúela eða Kanada í undanúrslitum Ameríkubikarsins.