Rekinn eftir tapið í nótt

Félix Sánchez vonsvikinn eftir tapið í nótt.
Félix Sánchez vonsvikinn eftir tapið í nótt. AFP/Juan Mabromata

Spánverjinn Félix Sánchez hefur verið rekinn sem þjálfari karlaliðs Ekvadors í knattspyrnu eftir tap liðsins fyrir heimsmeisturum Argentínu í átta liða úrslitum Ameríkubikarsins, Copa America, í nótt. 

Argentína hafði betur eftir vítaspyrnukeppni en fyrir leik var orðrómur um að Sánchez yrði rekinn ynni Ekvador ekki. 

Sánchez vann í akademíu Barcelona áður en hann tók við landsliði Katar og gerði þá að Asíumeisturum 2019. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert