Logi Tómasson skoraði mark Strömsgodset í jafntefli gegn Sandefjord, 1:1, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta á heimavelli í dag.
Strömgodset er í sjötta sæti deildarinnar með 19 stig eftir leikinn í dag.
Logi kom Strömsgodset yfir á 42. mínútu en aðeins þremur mínutum síðar jafnaði Sandefjord.
Kristiansund hafði þá betur gegn Fredrikstad, 3:1, í Íslendingaslag nýliðanna í dag.
Hilmir Rafn Mikaelsson spilaði allan leikinn fyrir Kristiansund líkt og Júlíus Magnússon hjá Fredrikstad.
Kristiansund er í sjöunda sæti deildarinnar með 17 stig en Fredrikstad er í fimmta sæti með 22 stig.