Liverpool-maðurinn ætlaði í slag í stúkunni

Darwin Núnez lenti í vandræðum eftir leikinn í nótt.
Darwin Núnez lenti í vandræðum eftir leikinn í nótt. AFP/Buda Mendes

Leikmenn Úrúgvæ fóru upp í stúku til að verja fjölskyldur sínar frá slagsmálum stuðningsmanna eftir 1:0-tap Úrúgvæ gegn Kólumbíu í undanúrslitum Ameríkubikarsins.

„Þetta er til skammar, fjölskyldur okkar voru í hættu. Við urðum að fara upp í stúku að hjálpa, það voru börn þarna. Það var ekki ein lögregla þarna,“ sagði José María Giménez, varnarmaður Úrúgvæ eftir atvikið.

Darwin Núnez, leikmaður Liverpool, var einn af þeim sem fór upp í stúku. Hann virðist reyna að kýla stuðningsmann en liðsfélagar hans náðu að halda í hann en hann endaði svo á því að fá högg.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert