Allt uppselt fyrir Mbappé

Kylian Mbappé verður kynntur sem nýr leikmaður Real Madrid á …
Kylian Mbappé verður kynntur sem nýr leikmaður Real Madrid á þriðjudaginn. AFP/FRANCK FIFE

Franski fótboltamaðurinn Kylian Mbappé verður kynntur sem nýr leikmaður Real Madrid á þriðjudaginn á heimavelli Real Madrid, Santiago Bernabéu.  

Það verða 85.000 áhorfendur á kynningunni og er því uppselt. Margir stuðningsmenn Real Madrid eru að endurselja miða á viðburðinn á hátt í 200 evrur. 

Mbappé gekk til liðs við Real Madrid fyrr í sumar á frjálsri sölu eftir að samningur hans við PSG rann út.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert