Andrea í glænýtt félag á Flórída

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir í leik með FH gegn Breiðabliki …
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir í leik með FH gegn Breiðabliki í sumar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Knattspyrnukonan Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir hefur gert samning við bandaríska félagið Tampa Bay Sun FC en félagið var stofnað fyrir rúmu ári síðan.

Lið félagsins er á leiðinni í sitt fyrsta tímabil í nýrri USL-deild, sem inniheldur átta félög og er ekki hluti af NWSL-deildinni þar sem sterkustu lið Bandaríkjanna spila.

Andrea, sem er 28 ára, lék ellefu leiki með FH á tímabilinu en heldur nú vestur um haf.

Ásamt því að leika með Breiðablik og FH hefur Andrea spilað með Le Havre í Frakklandi, Houston Dash í Bandaríkjunum og Mazatlán og América í Mexíkó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert