Knattspyrnukonan Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir hefur gert samning við bandaríska félagið Tampa Bay Sun FC en félagið var stofnað fyrir rúmu ári síðan.
Lið félagsins er á leiðinni í sitt fyrsta tímabil í nýrri USL-deild, sem inniheldur átta félög og er ekki hluti af NWSL-deildinni þar sem sterkustu lið Bandaríkjanna spila.
Andrea, sem er 28 ára, lék ellefu leiki með FH á tímabilinu en heldur nú vestur um haf.
Ásamt því að leika með Breiðablik og FH hefur Andrea spilað með Le Havre í Frakklandi, Houston Dash í Bandaríkjunum og Mazatlán og América í Mexíkó.