Manchester United tapaði fyrir norsku liði

Manchester United tapaði fyrir Rosenborg.
Manchester United tapaði fyrir Rosenborg. AFP/Ole Martin

Norska knattspyrnuliðið Rosenborg hafði betur gegn stórliði Manchester United, 1:0, í æfingaleik á heimavelli Rosenborg í Þrándheimi í Noregi í dag. 

Marcus Rashford, Mason Mount, Casemiro, Aaron Wan-Bissaka og Jonny Evans voru allir í byrjunarliði United en þrátt fyrir það tókst liðinu ekki að skora. 

Sigurmark Rosenborg skoraði varamaðurinn Noah Holm undir blálok leiks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert