Messi hágrét á bekknum

Lionel Messi fór meiddur af velli.
Lionel Messi fór meiddur af velli. AFP/Buda Mendes

Argentínumaðurinn Lionel Messi þurfti að fara meiddur af velli í úrslitaleik Ameríkubikarsins í fótbolta í Miami í nótt. 

Messi lá eftir meiddur undir lok fyrri hálfleiksins en hann kom út í þeim seinni. Um miðjan seinni hálfleikinn datt hann hins vegar og gat ekki haldið leik áfram. 

Nico González kom inn á fyrir Messi en sá síðarnefndi hágrét á bekknum eftir að hafa farið af velli.  

Lionel Messi í molum á bekknum.
Lionel Messi í molum á bekknum. AFP/Charly Triballeau
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert