Rodríguez besti leikmaður mótsins

James Rodriguez var valinn besti leikmaður mótsins.
James Rodriguez var valinn besti leikmaður mótsins. AFP/Charly Triballeau

James Rodríguez, fyrirliði Kólumbíska landsliðsins var valinn besti leikmaður mótsins í Ameríkubikar karla í knattspyrnu.

Kólumbía tapaði úrslitaleiknum gegn Argentínu 1:0 en Rodriguez átti frábært mót og stóran þátt í því að koma Kólumbíu í úrslitaleikinn.

Rodríguez var í byrjunarliði í öllum sex leikjum liðsins, lagði upp sex mörk og skoraði eitt sjálfur.

Fyrir leikinn hafði Kólumbía farið 28 leiki án þess að tapa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert