Sameinast á ný í Skotlandi

Kasper Schmeichel er að semja við Celtic.
Kasper Schmeichel er að semja við Celtic. AFP/Alberto Pizzoli

Skoska knattspyrnufélagið Celtic er að ganga frá samningi við danska landsliðsmarkvörðinn Kasper Schmeichel en hann er sem stendur án félags.

Schmeichel, sem lék lengi með Leicester City í ensku úrvalsdeildinni, spilaði með Anderlecht í Belgíu á síðustu leiktíð.

Hann var alls í ellefu ár hjá Leicester og spilaði þar fyrir Brendan Rodgers, núverandi stjóra Celtic og verða þeir því sameinaðir á ný í Skotlandi.

Schmeichel, sem er 37 ára, hefur einnig leikið með liðum á borð við Manchester City, Leeds, Notts County og Nice. Hann á 105 landsleiki fyrir Danmörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert