Staðfesta komu Sverris

Sverrir Ingi Ingason er orðinn leikmaður Panathinaikos.
Sverrir Ingi Ingason er orðinn leikmaður Panathinaikos. Ljósmynd/Panathinaikos

Gríska knattspyrnufélagið Panathinaikos hefur staðfest komu landsliðsmannsins Sverris Inga Ingasonar. Kemur hann til félagsins frá Midtjylland í Danmörku og gerir fjögurra ára samning við sitt nýja félag.

Sverrir lék aðeins eitt tímabil með Midtjylland og var í lykilhlutverki hjá liðinu er það varð danskur meistari.

Hörður Björgvin Magnússon er leikmaður Panathinaikos og hefur verið þar frá 2022.

Sverrir þekkir grískan fótbolta vel en hann var leikmaður PAOK frá 2019 til 2023 og varð tvisvar grískur bikarmeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert