Úrslitaleikur Ameríkubikars karla í knattspyrnu hófst 85 mínútum eftir áætlaðan tíma vegna mikilla vandræða vegna troðnings.
Þúsundir fólks án miða reyndu að komast inn á völlinn og náðu að komast í gegnum öryggiskerfið. Það skapaði mikinn troðning í kringum völlinn og samkvæmt fjölmiðlum á vettvangi mátti sjá grátandi börn og fólk sem var illa haldið.
Stuðningsmenn Kólumbíu gengu það langt að reyna að komast inn á völlinn í gegnum loftræstikerfið eins og má sjá hér fyrir neðan.
More people getting into the game through… what??? The vent??
— Tactical Manager (@ManagerTactical) July 15, 2024
What is happening in the Copa America Final? pic.twitter.com/QKgkwEmnCW