Bæjarar vilja eina af stjörnum EM

Dani Olmo með Evrópubikarinn.
Dani Olmo með Evrópubikarinn. AFP/Kirill Kudryavtsev

Þýska knattspyrnustórveldið Bayern München vill fá Spánverjann og Evrópumeistarann Dani Olmo í sínar raðir. 

Olmo, sem er leikmaður RB Leipzig, var ein af stjörnum Evrópumótsins sem Spánn vann í fyrradag. 

Olmo skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö. Hann skoraði fyrra markið í 2:1-sigri á Þýskalandi í átta liða úrslitum og sigurmarkið í undanúrslitum gegn Frakklandi. 

Olmo er leikmaður RB Leipzig í Þýskalandi en samkvæmt miðlum þarlendis er klásúla í samningi hans sem leyfir honum að ræða við önnur félög bjóði þau 50 milljónir punda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert