Færir sig um set í Svíþjóð

Markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson.
Markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumarkvörðurinn Adam Ingi Benediktsson er genginn til liðs við Östersund frá Gautaborg. 

Adam Ingi skrifar undir tveggja ára samning hjá Östersund en liðið er í sænsku B-deildinni. 

Adam hefur ekki mikið spilað undanfarin ár en hann er varamarkvörðurinn í U21 árs landsliði Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert