Hver tekur við af Southgate?

Eddie Howe er núverandi knattspyrnustjóri Newcastle.
Eddie Howe er núverandi knattspyrnustjóri Newcastle. AFP/Adrian Dennis

Gareth Southgate hætti sem þjálfari enska landsliðsins í morgun og enskir miðlar eru strax farnir að koma með hugmyndir um hver tekur við.

 Eddie Howe, núverandi knattspyrnustjóri Newcastle í ensku úrvalsdeildinni, er á blaði ásamt Graham Potter, fyrrverandi knattspyrnustjóra Chelsea og Mauricio Pochettino sem er einnig fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea.

Lee Carsley sem þjálfar enska U21 landslið Englands er einnig á lista Sky Sports en enska knattspyrnusambandið hefur ekkert gefið út.

Southgate kom Englandi tvisvar í úrslitaleik á Evrópumóti, í undanúrslit og átta liða úrslit á HM og vann 61 af þeim 102 leikjum sem hann stýrði Englandi í.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert