Misvísandi upplýsingar í tengslum við Rúnar

Rúnar Alex Rúnarsson er á mála hjá FC Köbenhavn.
Rúnar Alex Rúnarsson er á mála hjá FC Köbenhavn. mbl.is/Arnthor Birkisson

FC Köbenhavn gerði mistök þegar kom að birta byrjunarlið sitt fyrir leik liðsins gegn Sönderjyske í vináttuleik dönsku liðanna í knattspyrnu karla í dag. 

Staðan er 1:0 í hálfleik fyrir Köbenhavn en Orri Steinn Óskarsson skoraði mark liðsins. Kristall Máni Ingason, Atli Barkarson og Daníel Leó Grétarsson leika þá með Sönderjyske. 

Markverðinum Rúnari Alex Rúnarssyni var stillt upp í byrjunarliði FC Köbenhavn á samfélagsmiðlunum X, áður Twitter, og Instagram fyrir leik. 

Gleymdu leiðréttingu á Instagram

Rúnar var hins vegar alls ekki í byrjunarliðinu en Nathan Trott byrjaði leikinn. 

Köbenhavn leiðrétti sig á X fyrir leik en á Instagram-síðu félagsins má enn sjá Rúnar Alex í byrjunarliðinu. Samkvæmt félaginu á íslenski markvörðurinn að koma inn á í seinni hálfleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert