Örlög mín að vera leikmaður Real Madrid

Það var vel tekið á móti Kylian Mbappé í dag.
Það var vel tekið á móti Kylian Mbappé í dag. Ljósmynd/AFP

Fjölmargir stuðningsmenn spænska úrvalsdeildarfélagsins Real Madrid tóku vel á móti franska knattspyrnumanninum Kylian Mbappé í dag.

Mbappé hefur lengi dreymt um að vera leikmaður liðsins og hefur verið að æfa sig í spænsku síðan hann var barn. Í dag fékk hann að sýna stuðningsmönnum liðsins afraksturinn sem er glæsilegur.

„Ég vissi að það voru örlög mín að spila með Real Madríd,“ sagði Mbappé á blaðamannafundi, á spænsku auðvitað.

Hann hefur verið nálægt því að ganga til liðs við Real síðustu þrjú ár en það tókst loksins í ár. Hann skoðaði aðstöðu liðsins og fékk að hitta nokkra leikmenn og knattspyrnustjóra liðsins, Carlo Ancelotti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert