Stuðningsmenn vilja ekki sjá Greenwood

Mason Greenwood er ekki velkominn hjá Marseille.
Mason Greenwood er ekki velkominn hjá Marseille. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood hefur samþykkt að ganga í raðir franska félagsins Marseille frá Manchester United, þrátt fyrir að margir stuðningsmenn félagsins vilja ekki sjá framherjann í röðum þess.

Stuðningsmenn Marseille hafa látið óánægju sína á samfélagsmiðlinum X í ljós þar sem merkingin #GreenwoodNotWelcome er áberandi, eða Greenwood er ekki velkominn.

Greenwood var að láni hjá Getafe á Spáni á síðustu leiktíð, þar sem hann er ekki inni í myndinni hjá United eftir að hann var handtekinn í byrjun árs 2022 og í kjölfarið ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, líkamsárás og líflátshótanir í garð kærustu sinnar.

Málið var að lokum látið niður falla þegar lykilvitni dró framburð sinn til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert