Tilkynntur sem leikmaður Freys

Patrik Sigurður Gunnarsson verður lærisveinn Freys Alexanderssonar.
Patrik Sigurður Gunnarsson verður lærisveinn Freys Alexanderssonar. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Knattspyrnumarkvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson er farinn frá Víkingi í Noregi og til belgíska félagsins Kortrijk.

Þar verður hann leikmaður Freys Alexandersonar, þjálfara liðsins. 

Patrik skrifar undir fjögurra ára samning hjá belgíska félaginu.

Hann var leikmaður Brentford frá árinu 2018 til ársins 2022 og var á þeim tíma lánaður til Southend United, Viborg, Silkeborg og loks Viking sem keypti markvörðinn svo í janúar 2022.

Patrik á að baki fjóra landsleiki fyrir Ísland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert