Annað færeyskt ævintýri í vændum?

KÍ Klaksvík náði langt á síðustu leiktíð.
KÍ Klaksvík náði langt á síðustu leiktíð. Ljósmynd/KÍ Klaksvík

Færeyska liðið KÍ frá Klaksvík er komið áfram í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir markalaust jafntefli á útivelli gegn Diffedange frá Lúxemborg í kvöld.

KÍ vann fyrri leikinn 2:0 og einvígið því með sömu markatölu. KÍ-liðið fangaði hjörtu knattspyrnuaðdáenda á síðustu leiktíð með mögnuðum sigrum í Evrópukeppnum UEFA og fór liðið alla leið í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

KÍ fær verðugt verkefni í næstu umferð því liðið leikur við Svíþjóðarmeistara Malmö. KÍ sló einmitt þáverandi Svíþjóðarmeistara Häcken úr leik í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert