Bandaríkin og Kosta Ríka gerðu markalaust jafntefli í vináttulandsleik þjóðanna í kvennaflokki í nágrenni Washington í nótt.
Þetta var síðast leikur Bandaríkjanna fyrir Ólympíuleikana í París. Þar er liðið með Sambíu, Þýskalandi og Ástralíu í riðli.
Fyrsti leikur bandaríska liðsins er gegn Sambíu 25. júlí.