Framlengir og fær fyrirliðabandið hjá Real

Luka Modric.
Luka Modric. AFP/Javier Soriano

Knattspyrnumaðurinn Luka Modric framlengir samning sinn við spænska stórveldið Real Madrid.

Modric framlengir samning sinn um eitt ár en hann hefur verið hjá Real síðan 2012 og hefur unnið 26 titla með félaginu. Hann hefur m.a. sex sinnum unnið Meistaradeild Evrópu og fjórum sinnum orðið spænskur meistari.

Hann hefur unnið flesta titla í sögu félagsins og tekur við sem fyrirliði liðsins af Nacho sem fór til Sádí-Arabíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert