Hættu við að tilkynna landsliðskonuna

Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir. mbl.is/Gunnar Egill

Landsliðsmarkmaðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í dag tilkynnt sem leikmaður Inter Mílanó á Ítalíu en færslan var tekin út.

Cecilía kemur til liðsins frá Bayern Munchen í Þýskalandi en mbl.is greindi frá félagskiptunum í  síðustu viku.

Ítalska liðið tilkynnti hana á samfélagsmiðlinum X klukkan 11:30 í morgun en tók hana út stuttu seinna.

https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2024/07/08/fer_i_markid_hja_inter_milano/

Inter mun mögulega tilkynna hana seinna í dag en það var greinilega ekki réttur tími í morgun.

Skjáskot/Twitter

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert