Mourinho fær leikmann frá Sádi-Arabíu

José Mourinho er orðinn knattspyrnustjóri Fenebahce.
José Mourinho er orðinn knattspyrnustjóri Fenebahce. AFP/Yasin Akgul

Franski knattpyrnumaðurinn Allan Saint-Maximin er genginn til liðs við Fenerbahce frá Tyrklandi. 

Þar verður hann lærisveinn José Mourinho sem tók við liðinu fyrr í sumar. 

Saint-Maximin kemur til tyrkneska félagsins frá Al-Ahli í Sádi-Arabíu en hann spilaði þar í eitt ár. 

Frakkinn var í fjögur ár hjá Newcastle og var um skeið lykilmaður hjá liðinu. 

Allan Saint-Maximin í leik með Newcastle.
Allan Saint-Maximin í leik með Newcastle. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert