Stefán Ingi í norsku úrvalsdeildina

Stefán Ingi Sigurðarson er á leiðinni til Sandefjord.
Stefán Ingi Sigurðarson er á leiðinni til Sandefjord. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Stefán Ingi Sigurðarson er að ganga til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Sandefjord. 

Nettavisen í Noregi greinir frá en hann kemur til norska liðsins frá Patro Eisden í belgísku B-deildinni. 

Sandefjord er í neðsta sæti norsku deildarinnar með 13 stig eftir 15 leiki en það eru aðeins fjögur stig upp í niunda sætið. 

Stefán er uppalinn hjá Breiðabliki og var magnaður fyrri hluta tímabilsins með Kópavogsliðinu í fyrra áður en hann fór til Belgíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert