Thiago í þjálfarateymi stórliðsins

Thiago á æfingu liðsins.
Thiago á æfingu liðsins. Ljósmynd/Barcelona

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Thiago Alcántara er kominn í þjálfarateymi karlaliðs Barcelona. 

Thiago lagði skóna á hilluna eftir erfitt tímabil með Liverpool en hann var mikið frá vegna meiðsla. 

Hann kom upp úr akademíu liðsins og spilaði með aðalliðinu frá 2009 til 2013 og vann fjölmarga titla með liðinu á þeim tíma.

Hann er nú að safna reynslu sem þjálfari og verður með liðinu í sumar og fer með liðinu í æfingarferð til Bandaríkjanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert