Tilkynntu landsliðskonuna aftur

Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir. Ljósmynd/Inter Women

Landsliðsmarkmaðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir var tilkynnt sem leikmaður Inter Mílanó í ítölsku A-deildinni í fótbolta í annað sinn í dag.

Cecilía kemur til liðsins frá Bayern München þar sem hún hefur verið frá 2022 en lítið spilað  vegna meiðsla.

Hún sneri nýlega aftur í íslenska landsliðshópinn og er nú kominn í Inter á Ítalíu en liðið endaði í fimmta sæti á síðustu leiktíð.

Inter tilkynnti hana í morgun en tók færsluna út en nú virðist sem tilkynningin sé komin til að vera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert