Spænski knattspyrnumarkvörðurinn Pepe Reina hefur skrifað undir samning við ítalska félagið Como.
Cesc Fábregas er stjóri Como en liðið mun leika í ítölsku A-deildinni á komandi leiktíð.
Reina verður 42 ára stuttu eftir að leiktíðin hefst en hann hefur spilað með Villareal undanfarin tvö ár.
Þá er Reina hvað frægastur fyrir sinn tíma með Liverpool en hann var markvörður félagsins frá 2005 til 2013.