Fyrrverandi fyrirliði Arsenal til Sádí-Arabíu

Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang. AFP/Clement Mahoudeau

Knattspyrnumaðurinn Pierre-Emerick Aubameyang skrifaði undir samning við Al Qadsiah í Sádí-Arabíu í dag.

Hann kemur til liðsins frá Marseille í Frakklandi en hann hefur einnig spilað með Chelsea, Dortmund, Barcelona og var fyrirliði Arsenal.

Hann hefur spilað 154 leiki í frönsku deildinni, 144 í þýsku og 143 í ensku. Hann er 35 ára gamall framherji og verður aftur liðsfélagi Nacho Fernández, fyrrum fyrirliða Barcelona en hann kom til félagsins fyrr íþessum mánuði. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert