Huggulegt mark Andra á Kýpur

Andri Fannar Baldursson skoraði fallegt mark.
Andri Fannar Baldursson skoraði fallegt mark. mbl.is/Eyþór

Sænska liðið Elfsborg tryggði sér í kvöld sæti í 2. umferð Evrópudeildar karla í fótbolta með útisigri á Paphos frá Kýpur, 5:2. Elfsborg vann fyrri leikinn 3:0 og einvígið því samanlagt 8:2.

Andri Fannar Baldursson lék allan leikinn með Elfsborg og skoraði huggulegt mark er hann kom liðinu í 3:2 á 48. mínútu. Eggert Aron Guðmundsson var allan tímann á bekknum.

Elfsborg mætir annað hvort Zira frá Aserbaídsjan eða Sheriff frá Móldóvu í næstu umferð. Þegar þessi frétt er skrifuð er framlenging að hefjast í leik þeirra í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Mark Andra má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert