Kom inn á völlinn aðeins 14 ára gamall

Cavan Sullivan í leiknum í nótt.
Cavan Sullivan í leiknum í nótt. Ljósmynd/Philadelphia Union

Hinn fjórtán ára gamli Cavan Sullivan er ynstri knattspyrnumaður í sögu bandarísku MLS-deildarinnar í fótbolta. 

Hann kom inn á fyrir lið sitt Philadelphia Union í stórsigri á New England Revolution, 5:1, á heimavelli í nótt. 

Sullivan er 14 ára og 293 daga gamall en hann sló met Freddy Adu sem var 14 ára og 306 daga gamall þegar hann spilaði fyrst fyrir D.C. United árið 2004. 

Sullivan er vonarstjarna Banadaríkjanna og samkvæmt miðlum þarlendis er Manchester City með augastað á honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert