Landsliðsþjálfarinn má ekki vera einn með leikmönnum

Bruce Mwape, þjálfari Sambíu.
Bruce Mwape, þjálfari Sambíu. AFP/Saeed Khan

Bruce Mwape, þjálfari kvennalandsliðs Sambíu í fótbolta, má ekki vera einn með leikmönnum liðsins sem er að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í París. 

Mwape mun fylgja liðinu á Ólympíuleikana þrátt fyrir að FIFA sé að rannsaka ásakanir um kynferðislega áreitni á HM árið 2023. 

The Guar­di­an hef­ur áður fjallað um ásak­an­ir á hend­ur Mwape. „Ef hann vill sofa hjá þér verður þú að segja já. Það er al­gengt að þjálf­ar­inn sofi hjá leik­mönn­um í liðinu,“ sagði leikmaður liðsins við miðil­inn, en hún vildi ekki koma fram und­ir nafni, af ótta við að missa sæti sitt í liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert