Sonur Zlatans fetar í fótspor föður síns

Zlatan Ibrahimovic endaði ferilinn hjá AC Milan.
Zlatan Ibrahimovic endaði ferilinn hjá AC Milan. AFP/Filippo Monteforte

Maximilian Ibrahimovic, sonur Zlatans Ibrahimovic, fetar í fótspor Zlatans og gengur til liðs við AC Milan á Ítalíu.

Zlatan hætti í fótbolta árið 2023 en hefur verið að vinna fyrir AC Milan sem hann spilaði fyrir árin 2010-2012 og aftur frá 2020-2023. 

Maximilian er 17 ára gamall sóknarmaður og skrifaði undir samning til 2027 samkvæmt ítalska fréttamanninum Gianluca Di Marzio. Hann mun fyrst í stað leika með „framtíðarliði“ félagsins í ítölsku C-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert