Frakkinn Patrick Vieira hefur verið rekinn sem knattspyrnustjóri karlaliðs Strasbourg í Frakklandi.
Vieira tók við liðinu fyrir síðasta tímabil en tími hans olli vonbrigðum. Strasbourg hafnaði í 13. sæti frönsku deildarinnar.
Vieira var stjóri Crystal Palace áður en hann tók við Strasbourg. Þá hefur hann einnig stýrt Nice og New York City.
Sem leikmaður var Vieira magnaður í liði Arsenal sem vann marga titla og fór í gegnum ensku úrvalsdeildina án þess að tapa. Hann lék einnig fyrir Cannes, AC Mila, Juventus, Inter Mílanó og Manchester City.