Yamal fylgir í fótspor Messis

Lamine Yamal verður í treyju númer 19 á næstu leiktíð …
Lamine Yamal verður í treyju númer 19 á næstu leiktíð með Barcelona. AFP/Josep Lago

Spænska ungstirnið Lamine Yamal verður númer 19 á næstu leiktíð hjá knattspyrnustórveldinu Barcelona. 

Fylgir hann þar með í fótspor knattspyrnusnillingsins Lionel Messi sem var númer 19 áður en hann fékk treyju númer 10 hjá félaginu. 

Yamal er mest spennandi leikmaður heims í dag en hann er nýorðinn 17 ára gamall og var lykilmaður í Evrópumeistaraliði Spánar. 

Honum hefur oft verið líkt við Messi. Yamal þvertekur þó fyrir það og segir að enginn knattspyrnumaður muni verða eins góður og Argentínumaðurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert