Auglýsa þjálfarastöðu enska landsliðsins

Gareth Southgate, fyrrum þjálfari enska landsliðsins.
Gareth Southgate, fyrrum þjálfari enska landsliðsins. AFP/Ina Fassbender

Opið er fyrir umsóknir fyrir þjálfarastöðu enska karlalandsliðsins í knattspyrnu á vef knattspyrnusambands Englands.

Garetjh Southgate sagði upp sem þjálfari liðsins eftir EM og það hefur ekki tekist að finna þjálfara í hans stað hingað til.

Nú er hægt að sækja um starfið á thefa.com en það lokar fyrir umsóknir 2. ágúst.

Til þess að sækja um þarftu að vera sterkur leiðtogi, með UEFA Pro þjálfaragráðu og með reynslu af því að þjálfa og þróa hæfileika enskra leikmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert