Fábregas formlega stjóri ítalska liðsins

Cesc Fábregas er orðinn stjóri Como.
Cesc Fábregas er orðinn stjóri Como. Ljósmynd/Como

Cesc Fábregas er orðinn knattspyrnustjóri ítalska félagsins Como. 

Como er nýliði í ítölsku A-deildinni en Fábregas skrifar undir fjögurra ára samning. 

Fábregas var bráðabirgðastjóri sem og aðstoðarþjálfari á síðustu leiktíð er liðið kom sér upp í efstu deild Ítalíu. 

Hann á ásamt Thierry Henry,  fyrrverandi liðsfélaga sínum hjá Arsenal, hlut í ítalska félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert