Ungur leikmaður Vals vekur athygli

Ísabella Sara Tryggvadóttir hefur leikið vel með Val á leiktíðinni.
Ísabella Sara Tryggvadóttir hefur leikið vel með Val á leiktíðinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þýska vefsíðan Soccerdonna, sem sérhæfir sig í knattspyrnu í kvennaflokki, birti í dag lista yfir unga leikmenn sem leika á Norðurlöndunum sem vert er að fylgjast með.

Einn Íslendingur er á listanum en það er hin 17 ára gamla Ísabella Sara Tryggvadóttir sem leikur með Val.

Ísabella hefur leikið afar vel með Valsliðinu á leiktíðinni og skorað sex mörk í 13 leikjum í Bestu deildinni og tvö mörk í þremur bikarleikjum.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ísabella leikið 49 leiki í efstu deild og skorað í þeim ellefu mörk. Þá hefur hún leikið með U16, U17 og U19 ára landsliðum Íslands, samtals 38 leiki og skorað í þeim 12 mörk.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert