Varði víti í endurkomunni

Elías Rafn Ólafsson varði víti í kvöld.
Elías Rafn Ólafsson varði víti í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

AGF og Midtjylland skildu jöfn, 1:1, í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í Árósum í kvöld.

Elías Rafn Ólafsson er kominn aftur til Midtjylland eftir lánsdvöl hjá Mafra í Portúgal og hann fer afar vel af stað. Elías varði víti í stöðunni 1:0 fyrir AGF og stóð sig vel í leiknum.

Mikael Anderson lék fyrstu 87 mínúturnar með AGF.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert