Áhugaverð færsla Davids de Gea

David de Gea í leik með Manchester United.
David de Gea í leik með Manchester United. AFP/Paul Ellis

Knattspyrnumarkvörðurinn David de Gea gæti verið að snúa aftur á völlinn. 

Hann birti færslu á X-síðu sína, áður Twitter, þar sem má einfaldlega sjá merkingu af tímaglasi.

Fóru netverjar síðan að tengja það við fótboltann og að hann muni fara til nýs félags á næstunni.

De Gea hefur verið án félags í yfir ár eftir að hann varð samningslaus hjá Manchester United en þar var hann í 12 ár og spilaði 545 leiki.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert