Nökkvi skoraði í Bandaríkjunum

Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði eina mark St. Louis City í …
Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði eina mark St. Louis City í nótt. Ljósmynd/St. Louis City

Sóknarmaðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði mark St. Louis City í jafntefli liðsins gegn Sporting Kansas City, 1:1, í MLS-deildinni í fótbolta í nótt. 

Nökkvi kom St. Louis City yfir á 42. mínútu en Sporting jafnaði á 73. mínútu. Nökkvi var síðan tekinn af velli á 84. mínútu. 

St. Louis er í þrettánda og næstneðsta sæti Vesturdeildarinnar með 23 stig. 

Dagur Dan Þórhallsson spilaði þá allan leikinn í jafntefli Orlando City gegn New York City, 1:1, í Orlando í dag. 

Orlando-liðið er í sjöunda sæti Austurdeildarinnar með 34 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert