Riftir samningi sínum og vill koma aftur til Evrópu

James Rodriguez.
James Rodriguez. AFP/Maddie Meyer

Kólumbíski knattspyrnumaðurinn, James Rodríguez, hefur rift samn­ingi sín­um við brasilíska félagið Sao Paulo.

Hann var valinn besti leikmaður mótsins í Ameríkubikarnum og vill nú snúa aftur til Evrópu en hann hefur áður spilað í Evrópu, til dæmis með Real Madrid á Spáni, Everton á Englandi og Bayern München í Þýskalandi.

Rodríguez spilaði aðeins 36 mínútu í deildinni með Sao Paulo á síðasta tímabili en var frábær með Kólumbíu í Ameríkubikarnum. Hann er fyrirliði liðsins sem komst alla leið í úrslitaleikinn en tapaði þar gegn Argentínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert