Sonur Dagnýjar aftan á treyjunni (mynd)

Dagný Brynjarsdóttir og eldri sonur hennar Brynjar Atli Ómarsson.
Dagný Brynjarsdóttir og eldri sonur hennar Brynjar Atli Ómarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enska knattspyrnufélagið West Ham birti skemmtilega færslu á samfélagsmiðlinum X þar sem börn leikmanna kvennaliðsins voru í aðalhlutverki.

Félagið auglýsti treyjur fyrir yngri stuðningsmenn félagsins með nöfnum barna leikmannanna. Á meðal nafna sem voru aftan á treyjunum í auglýsingunni var Brynjar, sem er eldri sonur Dagnýjar. 

Dagný er sjálf að koma til baka eftir að hún átti sinn annan son með eiginmanni sínum Ómari Páli Sigurbjartssyni, en drengurinn kom í heiminn í febrúar.

Myndina má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert