Orri byrjar tímabilið glæsilega

Orri Steinn Óskarsson.
Orri Steinn Óskarsson. mbl.is/Hákon Pálsson

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaðurinn ungi í knattspyrnu, hóf nýtt tímabil í dönsku úrvalsdeildinni í dag eins og best verður á kosið.

Orri sló í gegn með FCK á síðasta tímabili þegar hann skoraði 15 mörk í öllum mótum. Fyrsti leikur liðsins á tímabilinu 2024-25 hófst klukkan 17 gegn Lyngby á útivelli.

Það tók Orra aðeins sjö mínútur að koma Kaupmannahafnarliðinu yfir í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert