Tvöfaldur Íslandsmeistari kominn til Portúgals

Tobias Thomsen lék með bæði KR og Val.
Tobias Thomsen lék með bæði KR og Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tobias Thomsen, danski knattspyrnumaðurinn sem lék með bæði KR og Val fyrir nokkrum árum, hefur samið við portúgalska félagið Torreense.

Tobias var markahæsti leikmaður Hvidovre í dönsku úrvalsdeildinni á  síðasta tímabili en það dugði ekki til að halda liðinu í deildinni. Samningur hans rann út í sumar og Tobias samdi í kjölfarið við Torreense sem leikur í B-deildinni í Portúgal.

Tobias skoraði 18 mörk í 63 leikjum í efstu deild fyrir KR og Val sem hann lék með á árunum 2017 til 2020 en hann varð Íslandsmeistari með báðum Reykjavíkurliðunum, með Val 2018 og með KR 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert