Elías hélt hreinu í Evrópusigri

Elías Rafn Ólafsson hélt hreinu í Andorra.
Elías Rafn Ólafsson hélt hreinu í Andorra. Ljósmynd/Robert Spasovski

Danska liðið Midtyjlland vann Santa Coloma frá Andorra, 3;0, í fyrri leik liðanna í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar karla í knattspyrnu á þjóðaleikvangi Andorra í kvöld. 

Elías Rafn Ólafsson var í marki MIdtjylland en hann er orðinn aðalmarkvörður liðsins eftir að hafa verið á láni á síðustu leiktíð. 

Franculino, Ousmane Diao og Aral Simsir skoruðu mörk Midtyjlland en seinni leikur fer fram í Danmörku eftir viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert