Smáatriðin senda þig heim

Wendie Renard er fyrirliði franska landsliðsins.
Wendie Renard er fyrirliði franska landsliðsins. AFP/Martin Keep

Knattspyrnukonan Wendie Renard er að fara á Ólympíuleikana í París en það verður hennar tíunda stórmót með franska landsliðinu.

Renard er öflugur miðvörður og hefur unnið 37 titla á ferlinum alla með Lyon í heimalandinu en engan með franska liðinu, sem er þessa stundina númer tvö á heimslistanum.

Hún hefur spilað með franska landsliðinu frá 2011 og er fyrirliði landsliðsins og Lyon. Ólympíuleikarnir í ár verða þriðju leikarnir hennar.

Frakkland hefur ekki spilað úrslitaleik í langan tíma en oft verið nálægt því, til dæmis komst liðið í undanúrslit á EM 2022 og átta liða úrslitum á HM 2023. 

„Þegar við horfum til baka á þessa leiki þá vantar okkur ekki margt en það eru smáatriðin sem senda þig heim,“ sagði Renard.

Frakkland er í A-riðli með Kanada, Kólumbíu og Nýja Sjálandi en það eru 12 lið sem taka þátt á mótinu og Frakkland er eitt sigurstranglegasta liðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert